TÍMA
BLIKIN
Tímablikin er þríleikur (trilogia), eftir Kjartan Ólafsson tónskáld, sem samanstendur af samþættingu ljóðlistar, tónlistar og myndlistar.
Öll verkin tengjast en eru þó hver um sig sjálfstæð eining. Efnið í þríleiknum er samið á undanförnum árum og fjallar um „tímablikið“, þögnina, sýndarverurnar og hin margvíslegu tilverustig.

Ljóðin
Ljóðin í bókinni Tímanna blik eru samin á undanförnum árum og fjalla um „tímablikið“, þögnina,
sýndarverurnar og hin margvíslegu tilverustig.
Bókin kemur út 24. september 2026
Tónlistin
Tímablik – píanóljóð, 38 tónverk fyrir píanó, kom út á streymisveitum í ágúst og inniheldur 38 einleikstónverk fyrir píanó í flutningi höfundar. Tónverkin byggja öll á ljóðunum í ljóðabókinni Tímanna blik og bera sömu nöfn og ljóðin í bókinni. Flest tónverkanna á Tímablik eru spunasamin (improvized) í sjálfri upptökunni og er innhald og boðskapur hvers ljóðs látið stýra tónsmíðinni hverju sinni. Þannig endurspegla tónverkin ljóðin bæði í hljómum, áferð og tónum.
Hægt er að hlusta á tónverkin með því að skanna QR kóðann hér á síðunni eða með því að ýta hér



Myndlistarsýningin Tímasýn verður opnuð haustið 2027 og eru öll myndverkin einnig byggð á ljóðunum í Tímanna blik og tengjast samnefndum tónverkum í Tímablik. Þar verða sýnd ólíumálverk, eftir Kjartan, sem lýsa á myndrænan hátt efni ljóðanna og tónlistarinnar í Tímabliks-þríleiknum.
