top of page

Líf - uppistand augnabliksins

Lýsing

Kjartan Ólafsson er tónskáld og hefur samið vel á þriðja hundrað tónverk af ólíkum gerðum og hafa
mörg verka hans verið byggð á bókmenntalegum grunni.

Ljóð eftir Kjartan hafa ekki birst opinberlega áður fyrir
utan ljóðið við lagið LaLíf sem gefið var út af
hljómsveitinni SmartBand á sínum tíma.

Ljóðin í bókinni fjalla um lífið, tímann og tilveruna með tilvísun í atburði liðinna tíma.

Ljóðabók - úgáfuár 2024

Tímanna blik

Lýsing

Ljóðin í Tímanna blik eru samin á undanförnum árum og fjalla um „tímablikið“, þögnina, 
sýndarverurnar og hin margvíslegu tilverustig.

​

​Efnið er tímaflakk með ólíkum viðfangsefnum og er skil milli raunheima og og draumheima oft óljós. Tíminn er afstæður í ljóðunum en skýrist oft í hinum ýmsu tímablikum þar sem bæði raunverur og sýndarverur koma fyrir.

Ljóðabók - kemur út september 2026
bottom of page